Persónuverndarstefna
Almennt
Skjaldmey Software er umhugað um persónuvernd þeirra sem heimsækja vefsíðuna skjaldmey.com. Stefna þessi lýsir því hvernig við meðhöndlum upplýsingar í tengslum við notkun á vefsíðunni.
Söfnun upplýsinga
Við notum ekki innsendingaform og söfnum ekki persónuupplýsingum beint frá gestum vefsíðunnar. Ef þú velur að hafa samband við okkur í gegnum tölvupósttengla á síðunni berast okkur eingöngu þær upplýsingar sem þú kýst að deila. Við notum þær einungis til að svara fyrirspurn þinni og afhendir þær ekki þriðja aðila.
Umferð um vefsvæðið
Við söfnum einfaldri tölfræði um notkun vefsíðunnar, svo sem fjölda heimsókna og hvaða síður eru skoðaðar. Gögnin eru ópersónugreinanleg og engar vafrakökur eru notaðar í þessum tilgangi.
Réttindi þín
Samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennri persónuverndarreglugerð ESB (GDPR) átt þú rétt á aðgangi að, leiðréttingu á og eyðingu persónuupplýsinga sem við kunnum að varðveita um þig. Til að neyta þessara réttinda skaltu hafa samband við okkur í gegnum tölvupósttengla á síðunni.
Breytingar
Við áskilum okkur rétt til að uppfæra stefnu þessa. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðunni.
Eftirlitsaðili
Telur þú að vinnsla persónuupplýsinga þinna samræmist ekki lögum hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd á www.personuvernd.is